Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. nóvember 2020 21:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Jón Daði byrjaði í markalausu jafntefli
Jón Daði Böðvarsson.
Jón Daði Böðvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru sex leikir í Championship-deildinni í Englandi í kvöld.

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Milwall og spilaði 80 mínútur þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Norwich á útivelli. Milwall er í sjöunda sæti með 16 stig.

Norwich er í þriðja sæti með 18 stig, en það er Swansea sem er í öðru sæti með 19 stig eftir jafntefli við Brentford á útivelli. Andre Ayew bjargaði stigi fyrir Swansea. Brentford er í áttunda sæti með 15 stig.

Cardiff, Sheffield Wednesday og Bristol City unnu sína leiki en öll úrslit kvöldsins má sjá hér að neðan.

Blackburn 0 - 0 Middlesbrough

Brentford 1 - 1 Swansea
1-0 Ivan Toney ('36 )
1-1 Andre Ayew ('77 )

Cardiff City 3 - 0 Barnsley
1-0 Junior Hoilett ('4 )
2-0 Joe Ralls ('45 , víti)
3-0 Harry Wilson ('77 )

Huddersfield 1 - 2 Bristol City
1-0 Josh Koroma ('43 )
1-1 Jay DaSilva ('77 )
1-2 Jamie Paterson ('83 )

Norwich 0 - 0 Millwall

Sheffield Wed 1 - 0 Bournemouth
1-0 Barry Bannan ('71 , víti)
Rautt spjald: Steve Cook, Bournemouth ('69), Kadeem Harris, Sheffield Wed ('90)
Athugasemdir
banner
banner
banner