Mark Ogden, háttsettur fjölmiðlamaður hjá ESPN, og þáttastýran Alexis Nunes hafa fengið að heyra það á samfélagsmiðlum undanfarna daga.
Ástæðan er myndband sem hefur verið í dreifingu þar sem þau, ásamt framleiðanda á ESPN, sjást gera gys að Harry Kane, sóknarmanni Tottenham og fyrirliða enska landsliðsins.
„Hann er svo leiðinlegur," segir Ogden áður en framleiðandinn skýtur inn í hvað hann hatar að hlusta á Kane tala, en Kane er smámæltur..
„Miðað við hvernig hann talar, þá getur hann þakkað guði fyrir að vera fótboltamaður," sagði Nunes.
Myndbandið átti ekki að fara í dreifingu, en því var einhvern veginn lekið. Ogden og Nunes hafa beðist afsökunar, en margir kalla eftir því að ESPN reki þau. Graham Roberts, fyrrum leikmaður Tottenham, er þar á meðal.
Hér að neðan má sjá myndbandið.
@ESPNUK mocking Harry Kane. Video now removed from YouTube. pic.twitter.com/AkeIjVsxo3
— Roger Hurst (@rjhurst) November 1, 2020
@alexisenunes you are an absolute disgrace @ESPNFC should sack and Ogden straight away
— Graham Roberts (@GrahamRoberts4) November 2, 2020
Athugasemdir