Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. nóvember 2020 07:30
Aksentije Milisic
Mount: Ziyech er heimsklassa leikmaður
Mynd: Getty Images
Mason Mount, leikmaður Chelsea, hefur sagt að liðsfélagi sinn, Hakim Ziyech, sé leikmaður í heimsklassa og að það sé gaman að spila með honum.

Ziyech var frá vegna meiðsla í byrjun tímabils en hefur verið að koma öflugur inn í lið Chelsea nú að undanförnu og skorað í tveimur leikjum í röð.

„Við vitum hvað hann getur gert með boltann og hvað hann kemur með fyrir liðið," sagði Mount.

„Hann er heimsklassa leikmaður og það er gaman að spila með honum. Mjög gáfaður leikmaður og færir liðinu mikið."

Chelsea mætir Rennes á heimavelli á morgun í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner