Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 03. nóvember 2020 21:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
PSG án Neymar og Mbappe meðal annars
Neymar og Mbappe.
Neymar og Mbappe.
Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain á leik gegn RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.

PSG er með þrjú stig fyrir leikinn, rétt eins og Leipzig. Á toppi riðilsins er Manchester United með sex stig. PSG og Leipzig munu mætast í tveimur leikjum í röð og eru þeir mjög mikilvægir upp á það að gera að komast upp úr riðlinum.

Parísarliðið verður án margra sterkra leikmanna annað kvöld. Kylian Mbappé, Neymar, Mauro Icardi, Marco Verratti og Julian Draxler verða ekki með í leiknum.

Franski fjölmiðlamaðurinn Mohamed Bouhafsi segir frá þessu.

Leikmennirnir eru að glíma við meiðsli en það er spurning hverjir verða í fremstu víglínu hjá PSG þar sem Mbappe, Neymar og Icardi eru allir frá.


Athugasemdir
banner
banner