Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. nóvember 2020 08:30
Aksentije Milisic
Simeone segir Suarez lykilinn að góðu gengi Atletico
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, segir að Luis Suarez sé lykilinn að því að Atletico Madrid sé að spila vel og vinna leiki.

Hann segir þá einnig að koma Suarez sé að hjálpa Joao Felix mikið en hann hefur verið að spila frábærlega fyrir Madrídarliðið upp á síðkastið.

„Við erum að spila vel og koma Suarez á mikinn þátt í því," sagði Simeone.

„Diego Costa og Alvaro Morata eru með öðruvísi persónuleika heldur en Suarez, við höfum verið að leita af öðruvísi gæðum. Luis þarf leikmenn nálægt sér, nálægt þar sem hann getur sært andstæðinginn, það er markmið liðsins."

„Við þurftum að aðlagast Radamel Falcao, Diego Costa og nú Luis Suarez."

Atletico mætir Lokomotiv Moskvu í Rússlandi í kvöld.

Athugasemdir
banner
banner
banner