Valgeir Valgeirsson skoraði tvö mörk þegar B lið Brentford vann U23 ára lið Leicester 4-1 í æfingaleik í dag.
Valgeir kom inn á sem varamaður á 75. mínútu leiksins og lét heldur betur til sín taka.
Á 81. mínútu skoraði Valgeir þriðja mark Brentford og sjö mínútum síðar bætti hann við öðru marki.
Valgeir kom til Brentford á láni á gluggadeginum í síðasta mánuði.
Þessi 18 ára gamli leikmaður skoraði einnig tvö mörk og lagði upp eitt í leik með Brentford B gegn Hendon á dögunum.
Athugasemdir