Þróttur Vogum óskar eftir því að ráða þjálfara fyrir yngstu flokka félagsins frá og með 1. janúar 2021. Leitað er eftir einstaklingi með brennandi ástríðu og áhuga á knattspyrnuþjálfun barna.
Þróttur Vogum heldur úti öflugu barna- og unglingastarfi, æfingum fyrir 8. - 4. flokk stúlkna og drengja allt árið um kring.
Mikið og gott starf er unnið á vegum félagsins og tekur Þróttur þátt í hinum ýmsu knattspyrnumótum víðsvegar um landið ásamt því að halda úti liðum í 5.- 4. flokki í Íslandsmóti.
Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá yfir menntun og fyrri störf og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar.
Allar almennar upplýsingar veitir Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar, í síma 892-6789 eða á netfangið [email protected].
Einnig er hægt að hafa samband við Viktor Inga Sigurjónsson yfirflokkaþjálfara og fá upplýsingar um starfið í síma 846-2983 og netfangið [email protected].
Umsóknir óskast sendar á netfangið [email protected]
Umsóknarfrestur er til 16. des 2020.
Vogar eru 1400 manna bæjarfélag á Suðurnesjum og aðeins 19 km frá Hafnarfirði. Í Vogum má finna alla helstu þjónustu ásamt leikskóla og grunnskóla. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar ásamt sundlaug. Upplýsingar um Voga má finna á heimasíðunni: www.vogar.is
Athugasemdir