Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. janúar 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arsenal ekki haft samband vegna Brandt
Brandt með lukkudýri Dortmund.
Brandt með lukkudýri Dortmund.
Mynd: Getty Images
Janúarglugginn er kominn á fulla ferð og það eru alls konar sögusagnir í gangi. Það eru sögusagnir núna um að Arsenal vilji fá Julian Brandt frá Borussia Dortmund.

Það hefur hins vegar ekki verið neitt samband á milli Arsenal og Borussia Dortmund vegna Brandt.

Þetta segir Michael Zorc, sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá Dortmund.

„Það hefur enginn haft samband við okkur og það er ekkert á borðinu," sagði Zorc við Bild.

Hinn 24 ára gamli Brandt er samningsbundinn Dortmund til 2024 og er í ágætis hlutverki hjá félaginu. Hann myndi því líklega kosta nokkuð háa fjárhæð.

Arsenal er sagt vera að skoða það að fá inn skapandi miðjumann. Isco, miðjumaður Real Madrid, hefur einnig verið orðaður við félagið.
Athugasemdir
banner
banner