Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. janúar 2021 19:05
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Southampton og Liverpool: Thiago byrjar - Henderson í miðverði
Thiago byrjar hjá Liverpool
Thiago byrjar hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Southampton og Liverpool eigast við á St. Mary's leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni klukkan 20:00 í kvöld. Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara kemur inn í lið Liverpool eftir að hafa glímt við meiðsli undanfarna mánuði.

Thiago meiddist á hné gegn Everton í október og tók hann rúmlega tvo mánuði að jafna sig af meiðslunum.

Hann lék tuttugu mínútur í markalausu jafntefli liðsins gegn Newcastle í síðustu umferð en er nú í byrjunarliðinu. Alex Oxlade-Chamberlain er með honum og Gini Wijnaldum á miðjunni.

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, er í hjarta varnarinnar ásamt Fabinho.

Alex McCarthy, markvörður Southampton, er ekki með liðinu í dag þar sem hann er smitaður af Covid-19. Danny Ings byrjar þá gegn sínum gömlu félögum.

Southampton: Forster; Walker-Peters, Stephens, Bednarek, Bertrand; Walcott, Ward-Prowse, Diallo, Djenepo; Armstrong, Ings.

Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Fabinho, Henderson, Robertson; Oxlade-Chamberlain, Thiago, Wijnaldum; Salah, Firmino, Sadio Mané
Athugasemdir
banner
banner
banner