Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 04. janúar 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Diallo kemur til Man Utd í janúar
Amad Diallo.
Amad Diallo.
Mynd: Getty Images
Hinn bráðefnilegi Amad Diallo mun á næstu dögum ganga í raðir Manchester United.

Diallo, sem er 18 ára gamall kantmaður, verður leikmaður Man Utd í þessum mánuði. United staðfesti á honum kaup fyrir nokkrum mánuðum fyrir 23 milljónir evra, en sú upphæð gæti farið í allt að 40 milljónir evra síðar meir.

Atalanta vildi halda Diallo á láni en leikmaðurinn vildi sjálfur fara til Manchester United strax. Það er að verða að veruleika að sögn Fabrizio Romano, sem er afar áreiðanlegur þegar kemur að félagaskiptum.

Romano segir að það sé staðfest að leikmaðurinn komi til janúar og hann getur því kannski hjálpað liðinu í titilbaráttunni á Englandi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner