Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. janúar 2021 19:24
Brynjar Ingi Erluson
Fimm skiptingar í undanúrslitum deildabikarsins
Ole Gunnar Solskjær fær að nota fimm skiptingar á miðvikudag
Ole Gunnar Solskjær fær að nota fimm skiptingar á miðvikudag
Mynd: Getty Images
Fimm skiptingar verða leyfðar í undanúrslitum enska deildabikarsins en þetta kemur fram í tilkynningu frá EFL-sambandinu í dag. Níu leikmenn mega þá vera á bekknum.

Brentford mætir Tottenham á þriðjudag á meðan Manchester United spilar við Manchester City í grannaslag á miðvikudaginn í deildabikarnum en félögin hafa fengið leyfi fyrir fimm skiptingum í leikjunum sem eftir eru, bæði í undanúrslitum og úrslitum bikarsins.

Fimm skiptingar voru leyfðar í ensku úrvalsdeildinni er síðasta tímabil fór aftur af stað um sumarið en þær eru hins vegar ekki í gildi á þessari leiktíð.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur barist fyrir því að fá fimm skiptingar í deildinni á þessari leiktíð en það hefur þó ekki borið árangur.
Athugasemdir
banner
banner
banner