Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 04. janúar 2021 20:31
Brynjar Ingi Erluson
Grikkland: Sigur í fyrsta leik hjá Elmari
Theodór Elmar Bjarnason
Theodór Elmar Bjarnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason spilaði sinn fyrsta leik fyrir gríska félagið Lamia en liðið vann góðan 2-0 sigur á Aris í úrvalsdeildinni í dag.

Elmar samdi við Lamia undir lok síðasta árs en hann kom frá tyrkneska félaginu Akhisaspor.

Lamia hafði ekki unnið leik í grísku deildinni fyrir komu Elmars en fagnaði fyrsta sigrinum í kvöld.

Elmar kom inná sem varamaður á 62. mínútu og nældi sér í gult spjald átján mínútum síðar.

Mikilvægur sigur í fallbaráttunni og er Lamia nú með 5 stig eftir ellefu leiki. Flest liðin í deildinni hafa leikið þrettán til fjórtán leiki og á liðið því góða möguleika á að styrkja sig í baráttunni um að halda sér uppi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner