Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. janúar 2021 22:23
Brynjar Ingi Erluson
Hasenhüttl fór niður á hnén og grét eftir sigurinn á Liverpool
Ralph Hasenhüttl grátandi á hliðarlínunni
Ralph Hasenhüttl grátandi á hliðarlínunni
Mynd: Getty Images
Ralph Hasenhüttl, knattspyrnustjóri Southampton, sýndi miklar tilfinningar eftir 1-0 sigurinn á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en sigurinn var afar þýðingarmikill fyrir hann.

Danny Ings skoraði sigurmark Southampton á 2. mínútu. Liðið átti nokkur góð færi og þrátt fyrir mikinn sóknarþunga frá Liverpool í þeim síðari þá tókst liðinu að halda út.

Þetta var fyrsti sigur Southampton á Liverpool undir hans stjórn og fagnaði hann ákaflega eftir leikinn.

Hann fór niður á hnén og grét eftir sigurinn en hægt er að sjá myndband af atvikinu hér fyrir neðan. Mögnuð stund fyrir hann.


Athugasemdir
banner
banner
banner