Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. janúar 2021 18:00
Brynjar Ingi Erluson
Ingimar Elí og Páll Gísli hættir hjá ÍA
Ingimar Elí Hlynsson
Ingimar Elí Hlynsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Páll Gísli Jónsson og Ingimar Elí Hlynsson eru hættir þjálfun hjá meistaraflokki ÍA en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.

Páll Gísli og Ingimar voru báðir í þjálfaraliði meistaraflokks en Páll hóf þjálfun þar árið 2018 eftir að hafa spilað sem markvörður fyrir félagið frá 2001 til 2018.

Hann var markvarðarþjálfari liðsins en lætur nú af störfum.

Þá hefur Ingimar Elí, aðstoðarþjálfari liðsins, einnig látið af störfum en hann hefur aðstoðað Jóhannes Karl Guðjónsson frá 2019.

Hann spilaði með Skagamönnum tvö tímabil, 2014 og 2015, en kom inn í þjálfaraliðið árið 2019.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner