Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. janúar 2021 12:49
Elvar Geir Magnússon
Lamela ekki með á morgun - Væntanlega í agabanni
Lamela ekki með á morgun.
Lamela ekki með á morgun.
Mynd: Getty Images
Erik Lamela verður ekki með Tottenham í undanúrslitaleik gegn Brentford í enska deildabikarnum annað kvöld.

Jose Mourinho sagði á fréttamannafundi að hann yrði ekki með í leiknum, án þess að gefa nánari útskýringar.

Enskir fjölmiðlar telja að Lamela sé í agabanni eftir að hafa mætt í samkvæmi um hátíðarnar.

Þrír leikmenn Tottenham voru í samkvæminu, auk Lamela voru það Giovani Lo Celso og Sergio Reguilon.

Lamela kom ekki við sögu í 3-0 sigrinum gegn Leeds um helgina, Reguilon var á bekknum og Lo Celso er á meiðslalistanum og sagt að hann spili ekki næstu vikurnar.

Sjá einnig:
Mourinho vonsvikinn með þremenningana: Óvænt og neikvæð uppákoma

Athugasemdir
banner
banner
banner