Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. janúar 2021 12:00
Magnús Már Einarsson
Lampard með færri stig en allir aðrir stjórar hjá Abramovich
Gengur illa þessa dagana.
Gengur illa þessa dagana.
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, stjóri Chelsea, er undir pressu þessa dagana en liðið hefur einungis fengið fjögur stig í síðustu sex leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea er núna í 8. sæti eftir að hafa verið að berjast um efsta sætið fyrir mánuði síðan.

ESPN hefur birt tölfræði sem sýnir að Lampard er með fæst stig að meðaltali hjá stjórum Chelsea síðan Roman Abramovich keypti félagið árið 2003.

Chelsea hefur fengið 1,67 stig að meðaltali í úrvalsdeildinni síðan Lampard tók við stjórnartaumunum.

Sjá einnig:
Starf Lampard í mikilli hættu

Athugasemdir
banner
banner