Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. janúar 2021 17:00
Elvar Geir Magnússon
Pau Torres til Real Madrid næsta sumar?
Pau Torres.
Pau Torres.
Mynd: Getty Images
Real Madrid vill fá spænska landsliðsmiðvörðinn Pau Torres frá Villarreal samkvæmt spænsku útvarpsstöðinni Cadena Cope.

Torres hefur leikið virkilega vel hjá Villarreal og hjálpaði liðinu að enda í topp fimm á síðasta tímabili. Hann er búinn að leika sjö leiki fyrir spænska landsliðið.

Búast má við tilboði frá Real Madrid næsta sumar.

Miklar vangaveltur hafa verið um framtíð Sergio Ramos, fyrirliða og miðvarðar Real Madrid, en samningur hans rennur út í sumar.

Raphael Varane, Nacho Fernandez og Eder Militao eru hinir miðverðirnir hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner