Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. janúar 2021 18:30
Brynjar Ingi Erluson
Pelle með tilboð frá Inter og Juventus
Graziano Pelle á óklárað verkefni í Seríu A
Graziano Pelle á óklárað verkefni í Seríu A
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Graziano Pelle er með tilboð í höndunum frá bæði Inter og Juventus en hann er án félags eftir að hafa yfirgefið kínverska félagið Shandong Luneng á dögunum.

Pelle er 35 ára gamall og hefur spilað í Kína síðustu fjögur árin þar sem hann gerði 62 mörk í 133 leikjum.

Þar áður lék hann afar vel með Southampton í ensku úrvalsdeildinni og var þeirra besti maður með 30 mörk í 81 leik á tveimur tímabilum.

Hann fann sig aldrei á Ítalíu í upphafi ferils eftir að hafa spilað með Cesena, Parma og Sampdoria og var það ekki fyrr en hann gekk til liðs við Feyenoord í Hollandi þar sem hæfileikar hans fengu að blómstra.

Þessi mikli fengur er nú samningslaus og með tilboð í höndunum frá bæði Inter og Juventus í Seríu A auk þess sem lið frá sameinuðu furstaríkjunum hafa áhuga á honum.

Pelle mun ákveða sig á næstu vikum en það verður gaman að sjá hvort hann hefur gæðin til að spila með þeim bestu.
Athugasemdir
banner
banner