Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 04. janúar 2021 10:00
Magnús Már Einarsson
PSG vill kaupa Moise Kean
Mynd: Getty Images
PSG er í viðræðum við Everton um að kaupa framherjann Moise Kean á 31 milljón punda.

Hinn tvítugi Kean er í láni hjá PSG en hann hefur skorað níu mörk í sextán leikjum á tímabilinu og vakið lukku hjá frönsku meisturunum.

Everton keypti Kean frá Juventus á 27 milljónir punda í ágúst 2019 en hann náði ekki að gera mikið á síðasta tímabili á Englandi.

Kean líkar vel í Frakklandi og líklegt þykir að PSG muni kaupa hann af Everton.
Athugasemdir
banner