Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. janúar 2021 23:33
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu atvikið: Átti Liverpool að fá víti?
Wijnaldum lætur vaða og Stephens fær boltann í handlegginn
Wijnaldum lætur vaða og Stephens fær boltann í handlegginn
Mynd: Getty Images
Leikmenn Liverpool vildu fá vítaspyrnu í tapi liðsins gegn Southampton í kvöld en atvikið átti sér stað á 51. mínútu.

Gini Wijnaldum fékk boltann í teignum og lét vaða á markið en Jack Stephens komst fyrir boltann og handlék knöttinn nokkuð augljóslega.

VAR skoðaði atvikið en ekkert víti dæmt. Mikill óstöðugleiki hefur verið í dómgæslunni og hafa mennirnir sem stýra VAR fengið mikla gagnrýni.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan en dæmi nú hver fyrir sig.

Sjáðu atvikið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner