Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. janúar 2021 13:30
Magnús Már Einarsson
Stóri Sam vill byrja á vörninni - Tosun einnig á óskalistanum
Cenk Tosun fagnar marki.
Cenk Tosun fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce, stjóri WBA, hefur sett í forgang að fá liðsstyrk í vörnina í þessum mánuði.

Allardyce ætlar að styrkja hópinn fyrir fallbaráttuna framundan og varnarmaður er efstur á lista.

Cenk Tosun, framherji Everton, er einnig á óskalistanum að sögn Sky Sports. Að sækja varnarmann er efst á lista en þar á eftir kemur Tosun.

Allardyce keypti Tosun til Everton frá Besiktas á 27 milljónir punda í janúar árið 2018.

Tosun hefur komið við sögu í sex leikjum á þessu tímabili hjá Everton. Fyrir ári síðan fór Tosun til Crystal Palace á láni en þar meiddist hann illa á hné.
Athugasemdir
banner
banner
banner