Í dag var ákveðið að fresta seinni undanúrslitaleik Napoli og Inter í ítalska bikarnum. Leikurinn átti að fara fram annað kvöld.
Áður hafði verið ákveðið að fresta hinum undanúrslitaleiknum, viðuregn Juventus og Milan sem átti að vera í kvöld.
Ástæðan fyrir þessum frestunum er kórónaveirufaraldurinn sem hefur geysað um Ítalíu.
Enn er óákveðið hvenær undanúrslitaleikirnir verða spilaðir.
Napoli vann 1-0 útisigur í fyrri leiknum gegn Inter og fyrri leikur Milan og Juventus endaði 1-1.

🚨 | ANNOUNCEMENT#NapoliInter, the second leg of the #CoppaItalia semi-final, has officially been postponed 👉 https://t.co/CseEp9Zi0d#FCIM
— Inter (@Inter_en) March 4, 2020
Athugasemdir