Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. mars 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Giggs hæstánægður með innkomu Bruno Fernandes
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs, fyrrum miðjumaður Manchester United, er ánægður með að sjá hvernig portúgalski miðjumaðurinn Bruno Fernandes hefur komið inn í liðið síðan hann kom frá Sporting Lisabon í janúar.


Fernandes hefur skorað þrjú mörk og lagt upp tvö í fyrstu fimm leikjum sínum með Manchester United.

„Hann er stórkostlegur leikmaður. Hann hefur lyft öllu upp og hann er bara nýkominn," sagði Giggs.

„Ég tel að hann geti ennþá orðið betri. Hann hefur byrjað af krafti, sérstaklega miðað við að hann kom í janúar, það er ekki alltaf sem það gengur."

„Hann er stórkostlegur og ég er ánægður með að sjá hann standa sig vel."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner