Arnór Sigurðsson kom fyrst við sögu með ÍA sumarið 2015 og lék sex leiki með ÍA sumarið 2016. Í kjölfarið hélt hann til Norrköping þar sem hann blómstraði.
Árið 2018 keypti rússneska stórliðið CSKA Moskva Arnór. Með CSKA hefur hann skorað gegn Real Madrid og Roma. Arnór á átta landsleiki og skorað í þeim eitt mark. Í dag sýnir Arnór á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Miðjan - Arnór Sig í sérstökum landsliðsþætti
Árið 2018 keypti rússneska stórliðið CSKA Moskva Arnór. Með CSKA hefur hann skorað gegn Real Madrid og Roma. Arnór á átta landsleiki og skorað í þeim eitt mark. Í dag sýnir Arnór á sér hina hliðina.
Sjá einnig:
Miðjan - Arnór Sig í sérstökum landsliðsþætti
Fullt nafn: Arnór Sigurðsson
Gælunafn: stundum er það Nóri en úti er það Sigge
Aldur: 20 ára
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki: 16 ára vs ÍBV árið 2015 í Pepsi.
Uppáhalds drykkur: nocco og vatn
Uppáhalds matsölustaður: белый кролик
Hvernig bíl áttu: er að safna fyrir bíl.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: eins og er þá er money heist á toppnnum. En þættir eins og prison break og drive to survive sterkir inni líka.
Uppáhalds tónlistarmaður: Drake, Travis og Herra.
Fyndnasti Íslendingurinn: þríeykið í Fm95blö engin spurning. gjörsamlega búnir að bjarga okkur í gegnum covid
Hvað viltu í bragðarefinn þinn: þristur, jarðaber og lakkrís
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: “sjá tölvupóst vegna lokaprófa” road to student 2020
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: aldrei segja aldrei og allt það
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Eden Hazard
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Hef verið mjög heppinn með þjálfara, bæði upp yngri flokka og síðan líka erlendis. En ef ég ætti að velja þá sem kenndu mér mest þá yrði það Sigurður Jónsson og Jens Gustafsson (Norrköping)
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Jón Dagur shit hvað hann er leiðinlegur
Sætasti sigurinn: 0-3 sigurinn á móti Real Madrid
Mestu vonbrigðin: að komast ekki upp úr riðlinum í Champions League.
Uppáhalds lið í enska: COYG
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr íslensku liði í þitt lið: Jón Vilhelm Ákason no doubt
Efnilegasti knattspyrnumaður/kona landsins: Ísak Bergmann og Ingi Þór Sigurðsson
Fallegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi: Hlynur Sævar Jónsson, flottur strákur.
Fallegasta knattspyrnukonan á Íslandi: allar gullfallegar
Besti knattspyrnumaðurinn frá upphafi: Messi
Hver er mesti höstlerinn í liðinu: Rússarnir eru allir svakalegir, þannig svarið mitt er allir.
Uppáhalds staður á Íslandi: Akraneshöllin í svona -8 gráðum, gerist ekki betra
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: ætla bara að leyfa fólki að skoða svarið hjá Guðmundi Andra við þessari spurningu. Það að þessi yndislegi drengur hafi tekið upp á þessu er mér mikill hausverkur.
Hin hliðin - Guðmundur Andri Tryggvason (Start)
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að sofa: loka augunum, finnst fólk ekki hafa verið nógu heiðarlegt í þessari spurningu.
Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum: ég fylgist með Formúlunni og síðan alltaf Dominos deildinni þegar úrslitakeppnin byrjar.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Superfly
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: aldrei verið neitt spes í efnafræði
Vandræðalegasta augnablik: 7-2 tapið með u21, guð minn almáttugur.
Hvaða þrjá leikmenn tækir þú með þér á eyðieyju: ég tæki alltaf með mér einn sem væri líklegur að finna leið af eyjunni og það yrði Alfons Sampsted, síðan yrði það Hilmar Halldórsson til þess að geta hlegið aðeins, afi Áki myndi síðan fullkomna þetta allt saman.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: er óeðlilega flinkur á Píanó
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: allir Íslendingarnir sem ég hef spilað með erlendis, gull af mönnum.
Hverju laugstu síðast: svarið hérna fyrir ofan, allt vel þreyttir gæjar.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: upphitun og set pieces
Nú er tími Covid-19 hvernig er “venjulegur” dagur: frekar basic, vakna og tek hlaup. Síðan bara rólegheit og slökun. Ég tek yfirleitt lyftingar seinni partinn og elda síðan eh svakalegt.
Athugasemdir