mán 04. maí 2020 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Onana falur fyrir rétt verð - Slæmar fréttir fyrir Kepa?
Mynd: Getty Images
Ajax vill gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda markverðinum Andre Onana innan sinna herbúða. Erik ten Hag, stjóri félagsins, viðurkennir þó að ef nægilega hátt tilboð kemur í markvörðinn verði félagið að láta hann fara.

Onana er 24 ára gamall og er talinn einn besti ungi markvörður í heimi. Hann hefur verið orðaður við Chelsea og Barcelona.

Onana vill taka skref fram á við á sínum ferli eftir fimm ár hjá hollenska félaginu.

Chelsea hefur, eins og áður segir, áhuga á Onana. Frank Lampard er sagður óviss með Kepa Arrizabalaga sem sinn aðalmarkvörð. Onana var fyrir heimsfaraldurinn metinn á um 35 milljónir punda en sá verðmiði gæti hafa lækkað.

„Andre er okkur mikilvægur, það segir sig sjálft að við vilum ekki missa hann," sagði ten Hag við Algemeen Dagblad.

„En það er satt að við erum með samkomulag við hann að hann getur farið ef rétt tilboð kemur á borð Ajax."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner