Arna Dís Arnþórsdóttir spilaði mjög vel fyrir Stjörnuna í kvöld þegar liðið tók á móti KR í 2. umferð Bestu deildar kvenna. Stjarnan vann leikinn 5-1. Arna Dís sagðist vera mjög sátt með leik liðsins í kvöld í viðtali eftir leik.
"Vel gert hjá okkur, ég er mjög sátt með að við settum nokkur mörk á þær. Það getur verið smá snúið að spila á móti KR, þær liggja svolítið til baka svo það var smá áskorun að brjóta leikinn upp en við náðum fimm mörkum og það er bara flott."
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 1 KR
Arna Dís sagði plan dagsins hafa gengið upp
"Vinna leikinn, koma ákveðnar til leiks og halda svona hraðanum okkar en ekki detta á þeirra plan."
Í byrjun seinni hálfleiks skoraði Arna Dís stórglæsilegt mark.
"Já, ég man ég átti skot í leiknum úti í Vestmannaeyjum sem var svipað, skoraði ekki þá þannig að það var bara tími til að skora núna."
Viðtalið við Örnu Dís má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.