Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 04. maí 2022 19:38
Brynjar Ingi Erluson
Aron Einar og Elías Rafn í bikarúrslit
Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland fara í bikarúrslitin í Danmörku
Elías Rafn Ólafsson og hans menn í Midtjylland fara í bikarúrslitin í Danmörku
Mynd: Getty Images
Viðar Ari Jónsson byrjaði
Viðar Ari Jónsson byrjaði
Mynd: Honved
Aron Einar Gunnarsson og hans menn í Al Arabi eru komnir í úrslit QFA-bikarsins í Katar eftir 2-1 sigur á Shamal.

Íslenski miðjumaðurinn var ekki með Al Arabi í dag er liðið tryggði sig í úrslitin en hann hefur verið í lykilhlutverki síðustu þrjú árin. Al Arabi komst í undanúrslit á síðasta ári en gerði betur í ár og mætir nú Lusail í úrslitum.

Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði Honved sem tapaði fyrir MOL Fehervar, 2-0, í ungversku deildinni. Viðar, sem kom til Honved frá Sandefjord, spilaði fyrstu sextíu mínútur leiksins. Honved er í 10. sæti með 34 stig.

Elías Rafn í bikarúrsit

Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í danska liðinu Midtjylland eru þá komnir í bikarúrslit eftir 3-1 sigur á Vejle í dag og vann því samanlagt 4-1 yfir tvo leiki. Elías er meiddur sem stendur og var því ekki með.

Midtjylland mætir OB eða SönderjyskE í úrslitum og fer sá leikur fram þann 26. maí.

Selma Sól Magnúsdóttir lék þá allan leikinn í 1-0 sigri Rosenborg á Stabæk. Rosenborg er í 3. sæti norsku deildarinnar með 18 stig eftir átta leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner