Þeir Rodrygo og Eduardo Camavinga voru frábærir er Real Madrid tryggði sig í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld en það er Telegraph og Manchester Evening News sem gefur einkunnir eftir leikinn.
Man City virtist örugglega á leið í úrslitaleikinn þegar lítið var eftir af leiknum en liðið var með tveggja marka forystu í einvíginu eða alveg þangað til Rodrygo skellti þeim í grasið með því að skora tvö mörk á rúmri mínútu.
Hann hafði komið inná sem varamaður fyrir Toni Kroos á 68. mínútu og sömuleiðis Eduardo Camavinga. Þeir tveir breyttu leiknum og spiluðu frábærlega ásamt Karim Benzema.
Phil Foden, Toni Kroos og Casemiro voru slökustu menn vallarins að mati Telegraph, allir með 4.
Real Madrid: Courtois (7), Carvajal (8), Militao (6), Nacho (6), Mendy (5), Kroos (4), Casemiro (4), Modric (7), Valverde (5), Benzema (8), Vinicius Jr (6).
Varamenn: Camavinga (8), Rodrygo (8), Asensio (6).
Man City: Ederson (5), Walker (8), Dias (6), Laporte (5), Cancelo (6), De Bruyne (6), Rodri (6), Bernardo (7), Mahrez (7), Jesus (5), Foden (4).
Varamenn: Gündogan (7), Zinchenko (6), Grealish (5), Fernandinho (6).
Athugasemdir