Jóhannes Karl Sigursteinsson þjálfari KR í Bestu deild kvenna var svekktur að leik loknum í kvöld þegar KR tapaði 5-1 á móti Stjörnunni í 2. umferð deildarinnar. Hann sá þó ljósa punkta í leik sinna kvenna og segir liðið hafa átt fína kafla í leiknum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 1 KR
"Við byrjum illa, erum 2-0 undir mjög snemma sem að gerir þetta náttúrulega erfitt, við þurfum að mæta til leiks og þora strax frá byrjun. Við unnum okkur ágætlega inn í leikinn, mér fannst ágætis kaflar í fyrri hálfleiknum en heilt yfir þá bara munar á hreinlega hraða á þessum liðum, við erum of lengi í okkar aðgerðum og við erum ekki að sýna "tempóið" sem þú þarft að sýna í efstu deild. Engu að síður fannst mér ákveðnir leikmenn stíga upp í dag og það er jákvætt að geta tekið það frá þessu. "
Jóhannes segir að liðið þurfi að bæta margt og læra hratt, en í liðinu eru margir leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í efstu deild.
"Planið var að reyna loka betur á Stjörnuna, liggja til baka, loka þeim svæðum sem Stjarnan vill sækja í og geta sótt hratt á þær. En til þess að geta það þarftu að geta varið þau svæði sem þú ert í og þú þarft að geta unnið einn á einn stöður þegar þær koma upp."
"Mér fannst færslan okkar bara of hæg og sérstaklega þegar við erum að skipta úr vörn í sókn og sókn í vörn að þá vantar bara upp á hraðann. Það sést kannski að við erum með marga leikmenn sem hafa ekki áður spilað í efstu deild."
Viðtalið við Jóhannes í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.