Kristján Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna var að vonum ánægður eftir 5-1 sigur sinna kvenna á KR í 2. umferð deildarinnar í kvöld.
"Við bara gerðum heilmargt gott, ég er bara ánægður með hvernig leikmennirnir komu inn í leikinn, góð stemning og vel einbeittar." sagði Kristján.
Lestu um leikinn: Stjarnan 5 - 1 KR
Kristján sagði liðið hafa verið vel undirbúið fyrir leikinn og að planið hafi gegnið upp.
"Við bjuggumst við því að þær myndu einmitt verjast svona aftarlega eins og þær gerðu og við vorum búnar að undirbúa okkur undir það að komast í svæðin á milli til þess að draga þær aðeins til og það tókst bara á köflum mjög vel."
Næsti leikur Stjörnunnar er á útivelli á móti Breiðablik en Breiðablik töpuðu óvænt 1-0 á móti Keflavík í kvöld.
"Nú þarf maður bara að leggjast yfir það og sjá hvað var í gangi í Keflavík í kvöld og svona sjá hvernig við þurfum að koma inn í þann leik en við erum ekkert farinn að hugsa um hann, við vorum bara að einbeita okkur að því að ná að vinna þennan, það var mjög mikilvægt áður en að við færum í Breiðablik en við búumst við alveg hörkuleik, mikið af hlaupum. Við erum búnar með tvo leiki við þær nú þegar og nú þurfum við að fara taka aðeins betur á því á móti þeim."
Viðtalið við Kristján má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.