Bandaríski körfuboltamaðurinn LeBron James fagnaði sigri enska úrvalsdeildarliðsins LIverpool á Villarreal í gær eftir að liðið tryggði sæti sitt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.
LeBron, sem er einn besti körfuboltamaður allra tíma, á hlut í Liverpool og birtir reglulega færslur á samfélagsmiðlum þar sem hann sýnir félaginu stuðning.
Hann hefur oft sést klæðast merki félagsins fyrir leiki í NBA-deildinni og var í skýjunum í gær eftir að Liverpool komst í úrslit Meistaradeildarinnar.
Jamie Carragher, sparkspekingur á CBS og fyrrum leikmaður Liverpool, hvetur James til að koma með til Parísar og fylgjast með leiknum.
„LeBron ef þú vilt koma með til Parísar þá getur þú komið með okkur og teymi CBS og þú getur verið gesturinn minn á hliðarlínunni og ég vil hafa þig með okkur í París. Gefðu okkur stuðninginn sem við þurfum til að vinna sjöunda Meistaradeildarbikarinn. Komdu með okkur stóri maður," sagði Carragher á CBS.
Hey @KingJames, @carra23 has an offer for you. 👀 pic.twitter.com/JjesSngZ3S
— CBS Sports Golazo ⚽️ (@CBSSportsGolazo) May 3, 2022
PARIS HERE WE COME!!!!!!!! @LFC 👏🏾👏🏾👏🏾👏🏾👏🏾👏🏾🔴🔴🔴🔴🔴🔴
— LeBron James (@KingJames) May 3, 2022
Athugasemdir