Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. maí 2022 22:21
Brynjar Ingi Erluson
Salah getur ekki beðið eftir úrslitaleiknum - „Eigum harma að hefna"
Mohamed Salah
Mohamed Salah
Mynd: EPA
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, var ekki lengi að tjá sig eftir að Real Madrid tryggði sig í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en hann getur ekki beðið eftir að mæta spænska liðinu.

Það muna eflaust flestir eftir því er Sergio Ramos notaði fantabrögð sín og meiddi Salah í úrslitaleik þessara liða í Meistaradeildinni árið 2018.

Salah fór af velli og Real Madrid vann leikinn 3-1. Madrídingar tryggðu sig í úrslitaleikinn í kvöld með sigri á Manchester City og er Salah spenntur að mæta spænska liðinu.

Hann sagði frá því í gær að hann vildi fá Madrid í úrslitum og talaði um að það væri erfitt að mæta City og fékk hann ósk sína uppfyllta.

Egypski sóknarmaðurinn birti myndir úr sigri Liverpool í gær og skrifaði undir: „Eigum harma að hefna."

Úrslitaleikurinn fer fram á Stade De France í París þann 28. maí.
Athugasemdir
banner
banner
banner