Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 04. maí 2022 08:29
Brynjar Ingi Erluson
Salah um markmið tímabilsins: Nú þarf ég að einbeita mér að mörkunum
Mohamed Salah
Mohamed Salah
Mynd: EPA
Mohamed Salah var með háleit markmið fyrir tímabilið en það er enn möguleiki fyrir hann að ná þeim.

Salah er búinn að skora 30 mörk og leggja upp 15 fyrir Liverpool í öllum keppnum á þessu tímabili.

Hann sagði frá markmiði sínu eftir leikinn í gær en hann hefur þegar náð einu af tveimur markmiðum eftir að hann lagði upp mark í 3-2 sigrinum á Villarreal.

Salah vildi leggja upp 15 mörk á tímabilinu og hann hefur náð því en nú vantar upp á mörkin.

„Fyrir öll tímabil þá veit ég hvað ég vil gera, bæði einstaklingsbundið og sem heild. Það vantar smá upp á en ég hef aldrei sagt frá þessu áður. Fyrir tímabilið þá vildi ég skora 40 mörk og leggja upp 15. Ég er kominn með stoðsendingarnar þannig nú þarf ég að einbeita mér að mörkunum!" sagði Salah eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner