Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. maí 2022 16:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Akureyri.net 
Skoraði síðast árið 2018 og þá einnig í sigri gegn Val
Sandra María
Sandra María
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sandra María Jessen skoraði fyrra mark Þórs/KA í fræknum sigri gegn Val í gær. Þetta var fyrsta mark Söndru í efstu deild á Íslandsi frá því árið 2018. Síðan hefur Sandra verið í Þýskalandi í atvinnumennsku en hún sneri til baka í vetur og gekk í raðir Þórs/KA.

Markið árið 2018 skoraði hún í leik gegn einmitt Val og vannst sá leikur 4-1 á Þórsvellinum. Arna Sif Ásgrímsdótitr, sem gekk í raðir Vals í vetur, skoraði einnig eitt marka Þórs/KA í leiknum. Það er Skapti Hallgrímsson á Akureyri.net sem vekur athygli á þessari staðreynd.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 -  1 Valur

„MAAARK! Heimastúlkur hafa verið með yfirhöndina síðustu mínútur. Ída fær boltann á miðjunni, Tiffany kemur á blindu hliðina og nær boltanum. Hún tekur sprettinn inná teiginn, sendir þvert fyrir á Söndru sem setur boltann framhjá nöfnu sinni í marki Vals," skrifaði Jóhann Þór Hólmgrímsson þegar hann lýsti marki Söndru í gær.

Lokatölurnar urðu 2-1 fyrir Þór/KA sem er með þrjú stig eftir tvær umferðir líkt og Íslandsmeistarar Vals.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner