Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 04. júní 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Choupu-Moting framlengir hjá Bayern
Mynd: Getty
Eric Maxim Coupo-Moting, sóknarmaður Bayern Munchen, er búinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við félagið.

Choupu-Moting verður í Muncen í tvö ár í viðbót.

Hann er 32 ára sóknarmaður frá Kamerún sem skoraði þrjú mörk í 22 deildarleikjum á síðustu leiktíð.

Hann hefur á sínum ferli leikið með Hamburg, Mainz, Nurnberg, Schalke, Stoke og PSG ásamt Bayern.

Hann er fæddur í Hamburg og lék með yngri landsliðum Þýskalands en valdi svo að spila fyrir kamerúnska landsliðið. Hann hefur skorað fimmtán mörk í 55 landsleikjum.
Athugasemdir
banner
banner