Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 04. júní 2021 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd ætlar að kaupa fjóra í sumar - Enginn framherji
Varane er orðaður við Man Utd
Varane er orðaður við Man Utd
Mynd: EPA
Manchester United er sagt vera með fjóra leikmenn á óskalista hjá sér samkvæmt Daily Star. Það sem vekur athygli við þann lista er að enginn af þeim er sóknarmaður en margir stuðningsmenn félagsins vilja fá inn framherja þrátt fyrir að Edinson Cavani hafi framlengt samning sinn.

Kieran Trippier hjá Atletico Madrid er á óskalistanum sem og þeir Raphael Varane hjá Real Madrid og Jadon Sancho hjá Dortmund.

Varane verður samningslaus næsta sumar en Trippier á tvö ár eftir á samningi. United ætli þá ekki að kaupa Sancho ef félagið telur verðmiða Dortmund of háan.

Miðjumaðurinn Saul Niguez, varnarmaðurinn Pau Torres og vængmaðurinn Raphinha eru meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við Man Utd að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner