Það er komin upp ný stúka á Sauðárkróksvelli þar sem Tindastóll spilar heimaleiki sína.
Eftir að kvennalið Tindastóls komst upp í Pepsi Max-deildina í fyrra hófust viðræður um framkvæmdir á vellinum.
Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði liðsins, starfar fyrir sveitarfélagið og hún talaði um byggingu á nýrri stúku í Heimavellinum eftir síðustu leiktíð.
„Það var verið að ræða um að ég myndi bara hjálpa til við að setja upp þessa stúku. Það er byrjað að pæla í þessu. Það er verið að tala um 250-300 manna. Ég býst við að við verðum á gervigrasinu áfram," sagði Bryndís Rut.
Núna er stúkan komin upp. Iðnaðarfyrirtækið Þ. Hansen ehf deilir mynd af stúkunni á Facebook. Myndina má sjá hér að neðan. Mjög flott stúkan.
Tindastóll hefur farið ágætlega af stað í Pepsi Max-deildinni og er með fjögur stig eftir fjóra leiki.
Athugasemdir