Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 04. júní 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ólíklegt að Henderson verði með í fyrsta leik - Maguire með á æfingu
Jordan Henderson verður ekki með í fyrsta leik
Jordan Henderson verður ekki með í fyrsta leik
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson verður að öllum líkindum ekki með Englandi í fyrsta leik liðsins á EM í sumar. Gareth Southgate, þjálfari enska liðsins, orðaði það þannig að það yrði alvöru bónus ef Henderson gæti verið með í fyrsta leik.

Harry Maguire er þá tæpur vegna ökklameiðsla en hann mun æfa með liðinu í dag eftir að hafa verið í einsktalingsbundnari æfingum til þessa.

Níu dagar eru í fyrsta leik Englands og Southgate á eftir að velja inn mann fyrir Trent Alexander-Arnold sem meiddist á dögunum. Sky Sports telur að Southgate muni velja á milli Jesse Lingard, James Ward-Prowse, Ben Godfrey eða Ben White.

Southgate hefur viðurkennt að hann valdi Henderson í hópinn vegna mikilvægi hans sem einstaklings innan hópsins og þau áhrif sem hann hefur á liðsfélaga sína.

Þeir Luke Shaw, Dean Henderson og Marcus Rashford æfa í fyrsta skipti með liðinu í dag en þeir komu til móts við hópinn í gær. Þessir leikmenn Manchester United fengu viku frí eftir úrslitaleik Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner