Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. júní 2021 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagður vera með betra tilboð frá Man Utd
Raphael Varane.
Raphael Varane.
Mynd: EPA
Raphael Varane, miðvörður Real Madrid, gæti söðlað um í sumar og hefur hann verið orðaður við Manchester United.

Varane vann HM með Frakklandi 2018 en hefur verið hjá Real síðasta áratug. Fréttir herma að hann hafi tilkynnt Madrídarliðinu að hann vilji takast á við nýja áskorun.

Varane er 28 ára og á eitt ár eftir af samningi sínum. Real er sagt vilja framlengja við hann en samkvæmt ABC á Spáni þá hefur hann ekki í hyggju að framlengja.

Samkvæmt spænska fjölmiðlinum þá er hann með betra tilboð frá Man Utd. Rauðu djöflarnir eru tilbúnir að borga honum meiri pening á fimm ára samningi.

Talið er að Real Madrid vilji fá um 60 milljónir punda fyrir franska miðvörðinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner