Dalvík/Reynir tapaði fyrsta leik sínum í 3. deild karla á þessu tímabili er liðið beið lægri hlut fyrir Sindra, 3-1, á Dalvíkurvelli í dag.
Dalvík/Reynir hafði unnið alla fjóra leiki sína fram að leiknum í dag og var útlitið gott eftir að Þröstur Mikael Jónasson kom liðinu yfir á 27. mínútu.
Gestirnir jöfnuðu með marki Mate Paponja úr vítaspyrnu á 41. mínútu og nýttu þeir sér meðbyrinn með að bæta við öðru marki tæpri mínútu síðar í gegnum Robertas Freidgeimas.
Undir lok leiks var það svo Ivan Eres sem tryggði Sindra sigur í leiknum og er liðið nú með 10 stig í 4. sæti deildarinnar eftir fimm leiki en Dalvík/Reynir er áfram á toppnum með 12 stig.
KFS vann þá annan sigur sinn í deildinni er liðið lagði Kormák/Hvöt að velli, 2-1. Eyþór Orri Ómarsson kom KFS yfir á 35. mínútu áður en Ingvi Rafn Ingvarsson jafnaði þegar hálftími var eftir af leiknum.
Magnús Sigurnýjas Magnússon náði í öll stigin fyrir KFS þegar fimmtán mínútur voru eftir og annar sigur KFS staðreynd. KFS er með 6 stig í 9. sæti en Kormákur/Hvöt í 7. sæti með jafnmörg stig en betri markatölu.
Úrslit og markaskorarar:
Dalvík/Reynir 1 - 3 Sindri
1-0 Þröstur Mikael Jónasson ('27 )
1-1 Mate Paponja ('41 , Mark úr víti)
1-2 Robertas Freidgeimas ('42 )
1-3 Ivan Eres ('90 )
Kormákur/Hvöt 1 - 2 KFS
0-1 Eyþór Orri Ómarsson ('35 )
1-1 Ingvi Rafn Ingvarsson ('60 )
1-2 Magnús Sigurnýjas Magnússon ('75 )
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir