Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 04. júní 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ajax með formlegt tilboð í Bergwijn
Mynd: Tottenham

Ajax er búið að leggja fram formlegt tilboð í hollenska framherjann Steven Bergwijn sem hefur verið hjá Tottenham í tvö og hálft ár án þess að takast að láta ljós sitt skína.


Hæfileikar Bergwijn fara þó ekki á milli mála þar sem hann er lykilmaður í hollenska landsliðinu en þar áður var hann hjá PSV Eindhoven í heimalandinu.

Núna er það Ajax sem vill fá þennan spræka framherja í sínar raðir og er Tottenham að skoða tilboðið frá Hollandsmeisturunum samkvæmt Telegraaf

Bergwijn er sagður vera tilbúinn til að skrifa undir fimm ára samning við Ajax.

Bergwijn er 24 ára og skoraði 8 mörk í 83 leikjum hjá Tottenham. Spurs er talið vilja fá 15 milljónir punda, sem samsvarar um 17,5 milljónum evra, fyrir leikmaninn.

Sjá einnig
Tottenham lækkar verðmiðann á Bergwijn


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner