Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. júní 2022 14:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Atli Barkar kallaður í landsliðið fyrir Willum
Mynd: KSÍ

Atli Barkarson hefur verið valinn í A-landsliðið fyrir komandi leiki. Hann kemur inn í stað Willums Þórs Willumsonar.


Atli lék með u21 árs landsliðinu í risasigri liðsins á Liechtenstein í gær og skoraði tvö mörk.

WIllum hefur staðið sig gríðarlega vel í Hvíta Rússlandi en hann sagði í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að hann væri að kljást við meiðsli á hásin.

Ísland mætir Albaníu á Laugardalsvelli á mánudaginn í Þjóðadeildinni. Liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Ísrael ytra á fimmtudaginn síðastliðinn.


Willum: Mjög gaman að vera kominn aftur
Athugasemdir
banner
banner