Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 04. júní 2022 06:00
Fótbolti.net
Landsliðslotterí á X977 í dag - Miðar, treyja og fleira
Mynd: Getty Images
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á laugardögum á X977 milli 12 og 14. Elvar Geir og Tómas Þór gera upp fótboltavikuna með góðum viðmælendum.

Þátturinn verður í landsliðsgír í dag og boðið verður upp á landsliðslotterí. Hlustendur geta hringt inn og unnið miða á komandi Þjóðadeildarleik gegn Albaníu sem verður á mánudag.

Að auki verður hægt að vinna nýju landsliðstreyjuna og bjórkort frá Ölveri. Síminn í hljóðveri er 511-0977.

Í þættinum verður líka fjallað um þjálfaramál á Íslandi, Lengjudeildina, landslið Bestu deildarinnar og fleira.

Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari verður á línunni og einnig Gary Martin en Selfyssingar eru á miklu flugi.


Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner