Sadio Mane er svo gott sem búinn að staðfesta að hann sé á förum frá Liverpool eftir sex frábær ár hjá félaginu.
Mane er að öllum líkindum að ganga til liðs við FC Bayern í Þýskalandi á fínu verði þar sem samningur hans við Liverpool rennur út á næsta ári.
„Eins og allir aðrir þá er ég á samfélagsmiðlum og get lesið ummæli fólks," sagði hinn þrítugi Mane á fréttamannafundi fyrir leik Senegal gegn Benín í undankeppni fyrir Afríkumótið.
„Það eru kannski 60 til 70% af Senegölum sem vilja sjá mig skipta um félag. Ég mun gera það sem þeir vilja!
„Þetta kemur allt í ljós bráðum. Það er óþarfi að reka á eftir þessu því við munum sjá þetta á sama tíma."
Athugasemdir