Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 04. júní 2022 14:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þjóðadeildin: Glæsimark tryggði Armenum sigur á Írlandi
Eduard Spertsyan
Eduard Spertsyan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Armenia 1 - 0 Ireland
1-0 Eduard Spertsyan ('74 )


Armenía fékk Írland í heimsókn í fyrsta leik A riðils í B deild Þjóðadeildarinnar í dag.

Það var markalaust í hálfleik en Armenía kom boltanum í netið snemma í síðari hálfleik en markið dæmt af vegna rangstöðu.

þegar stundarfjórðungur var til leiksloka átti Eduard Spertsyan glæsilegt skot að marki sem endaði í stönginni og í netið, óverjandi fyrir Caoimhín Kelleher í marki Írlands.

Armenía mætir Skotlandi í næstu umferð á miðvikudaginn á meðan Írland fær Úkraínu í heimsókn.


Athugasemdir
banner
banner