Titilbaráttan í ítölsku úrvalsdeildinni er svo gott sem búin eftir úrslit kvöldsins í deildinni.
Juventus vann fyrr í dag þægilegan heimasigur á nágrönnum sínum í Torino og Lazio þurfti sigur í kvöld gegn AC Milan til að halda titilbaráttunni spennandi.
Juventus vann fyrr í dag þægilegan heimasigur á nágrönnum sínum í Torino og Lazio þurfti sigur í kvöld gegn AC Milan til að halda titilbaráttunni spennandi.
Hún er ekki spennandi lengur því AC Milan vann 3-0 sigur gegn Lazio á útivelli. Hakan Calhanoglu og Zlatan Ibrahimovic skoruðu í fyrri hálfleik og bætti Ante Rebic við þriðja markinu eftir klukkutíma leik.
Vægast sagt áhugaverð úrslit, en nú er munurinn sjö stig á Juventus og Lazio þegar bæði lið eiga eftir átta leiki. Það verður gríðarlega erfitt fyrir Lazio að ná Juventus úr þessu. Milan er í sjötta sæti með 46 stig.
Í hinum leik kvöldsins vann Sassuolo 4-2 sigur á Lecce. Sassuolo er í níunda sæti og Lecce í 18. sæti, einu stigi frá öruggu sæti.
Sassuolo 4 - 2 Lecce
1-0 Francesco Caputo ('5 )
1-1 Fabio Lucioni ('27 )
2-1 Domenico Berardi ('63 , víti)
2-2 Marco Mancosu ('67 , víti)
3-2 Jeremie Boga ('78 )
4-2 Mert Muldur ('83 )
Lazio 0 - 3 Milan
0-1 Hakan Calhanoglu ('23 )
0-2 Zlatan Ibrahimovic ('34 , víti)
0-3 Ante Rebic ('59 )
Önnur úrslit:
Ítalía: Fyrsta aukaspyrnumark Ronaldo kom í grannaslagnum
Athugasemdir