Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 04. júlí 2021 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Coutinho má fara fyrir 20 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Brasilíski leikmaðurinn Philippe Coutinho er á mála hjá Barcelona. Fréttir herma að Barcelona sé tilbúið að láta leikmanninn fara ef tilboð upp á 20 milljónir punda berst í hann.

Coutinho kom til Barcelona frá Liverpool í janúar 2018 fyrir 142 milljónir punda. Hann hefur vægast sagt ekki staðið undir þeim verðmiða.

eftir eitt og hálft tímabil hjá Barcelona var hann lánaður til Bayern Munchen þar sem hann lék einungis 23 deildarleiki.

Hann meiddist á hné í lok árs 2020 og þurfti að fara í aðgerð sem hann er enn að jafna sig á og gæti það haft það orðið til þess að það verði erfitt fyrir hann að finna sér nýtt lið.
Athugasemdir
banner
banner
banner