Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. júlí 2021 12:50
Brynjar Ingi Erluson
Frestað á Ísafirði - Leikurinn fer fram klukkan 16:30
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik Vestra og Fjölnis í Lengjudeild karla er frestað til klukkan 16:30 en þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestra.

Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 14:00 en hefur nú verið frestað um tvo og hálfan tíma.

Leikmenn Fjölnis eru á leið í flug til Ísafjarðar en það er athugun á flugi klukkan 13:30.

KSÍ hefur því fært leikinn til 16:30 en Vestri mun færa frekari upplýsingar þegar nær dregur.

Vestri er í 6. sæti með 13 stig en Fjölnir einu sæti ofar með 14 stig þegar níu leikir eru búnir af deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner