banner
   sun 04. júlí 2021 14:03
Brynjar Ingi Erluson
Messi markahæstur og með flestar stoðsendingar á Copa America
Lionel Messi er að eiga frábært mót með Argentínu
Lionel Messi er að eiga frábært mót með Argentínu
Mynd: EPA
Argentínski snillingurinn Lionel Messi hefur verið langbesti maðurinn í Copa America þetta árið en hann skoraði eitt og lagði upp tvö í 3-0 sigri á Ekvador í 8-liða úrslitum mótsins í nótt.

Messi lagði upp mörk fyrir þá Rodrigo De Paul og Lautaro Martinez áður en hann skoraði svo sjálfur úr aukaspyrnu undir lokin.

Hann hefur skorað úr tveimur aukaspyrnum á mótinu til þessa en það virðist ekkert stöðva argentínska liðið þessa stundina.

Messi er markahæstur í mótinu með fjögur mörk og þá er hann einnig með flestar stoðsendingar eða fjórar talsins.

Hann virðist njóta sín og gæti mögulega landað sínum fyrsta bikar með Argentínu.

Messi er samningslaus sem stendur en er í viðræðum við Barcelona um að gera nýjan tveggja ára samning.
Athugasemdir
banner
banner
banner