Guðrún Arnardóttir var í byrjunarliði Djurgarden sem mætti Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Linköping komst yfir en Djurgarden jafnaði metin úr vítaspyrnu, 1-1 í hálfleik.
Djurgarden komst yfir á 73. mínútu en urðu síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark tveimur mínútum síðar og þar við sat, 2-2 lokatölur. Guðrún lék allan leikinn.
Djurgarden er í 8. sæti deildarinnar eftir 11 umferðir með 11 stig.
Athugasemdir